Textílmennt og sjálfbærni

HVAR ENDAR ALLUR TEXTÍLÚRGANGURINN???

Það er ekki nóg að selja fötin aftur heldur þarf neyslan að minnka mikið.

Það er ljóst að fólkið í ríkari hlutum jarðarinnar kaupir mest af fatnaði. Miklu meira en nokkur maður getur notað. Þar af leiðandi hendir sama fólkið einnig mest af fatnaði. Þrátt fyrir að hringrásarhagkerfið sé komið á skrið og sala á notuðum hlutum og fatnaði hafi aukist mikið heldu úrgangurinn áfram að vera alltof mikill. Hvar enda öll þessi föt?

Vissulega hefur hringrásarkerfið los komist á skrið og mikið um að fólk reyni að selja fötin sem þau vilja ekki lengur. En því miður er það oft til þess að kaupa svo aftur ný föt. Þá segir fólk kannski “Svo sel ég flíkina bara aftur og hún fer í hringrásina”. A.m.k. virðist úrgangurinn ekki minnka.

Ennþá er alltof miklu hent og við Íslendingar hendum einna mest af Jarðarbúum.

Við teljum okkur oft trú um að fötin sem við viljum ekki lengur komi fólki í fátækum löndum til góða. Að við séum að gera góðverk þegar við hendum þeim. En er það rétt?

Vissulega er mikið um að úrgangs fatnaður sé sendur til fátækari landa, t.d. landa í Afríku.

Í Vestur Afríkulandinu Ghana, er stærsti markaður fyrir notuð föt í heiminum og mætti segja að þar sé endastöð fyrir megnið af fötum sem jarðarbúar losa sig við. En magnið er svo mikið að einungis hluti af því geta íbúar notað. Restinni er hent, í landfyllingu, út í sjó eða brennt.

Eins og sjá má í heimildarmyndum og myndum á netinu eru strendurnar fullar af fötum og fatafjöll víða í borgum. Bátarnir komast varla út á sjó og sjómennirnir kvarta yfir því að nú veiði þeir bara föt.

Staðreyndin er sú að við erum ekki komin á þann stað að geta talað um hringrás þegar við erum enn að kaupa svona mikið af nýjum fötum.

NÆGJUSEMI ER LYKILATRIÐI

  • Meta hvort sé raunveruleg þörf fyrir fatakaupum – er svipuð flík kannski til í fataskápnum?
  • Skoða möguleikann á að laga eða breyta gamalli flík svo hún henti betur.
  • Athuga hvort hægt sé að leigja flík sé hún ætluð fyrir sérstakt tilefni.
  • Ef ekkert að ofantöldu gengur ættu allir að byrja í endursölubúðum og gera tilraun til að kaupa notaða flík.
  • Þá er mikilvægt að íhuga – passar flíkin inn í fataskápinn, er hún klassísk í sniði og stíl og myndi viðkomandi nota hana í mörg ár?
  • Síðasti kosturinn er að kaupa nýja flík.