Textíll og textílvörur
- Hvað er textíll?
- Hvar má finna textílvörur í umhverfinu, t.d. á heimilum okkar.
- Biðja nemendur að nefna dæmi (t.d. fötin okkar, heimilisvörur, húsgögn, leikföng, listmunir og fleira). Yfirleitt verða allir hissa á hversu mikið af textílvörum er í okkar lífi.
- Úr hverju er textíll gerður? Náttúruleg efni og gerviefni. Úr hverju og hvernig eru þau gerð? Ofin, prjónuð eða aðrar aðferðir. Kostir og gallar þessara efna. Sýna og skoða sýnishorn af efnunum.
- Íslensk ull; sauðfé, vinnsla, kostir og gallir íslensku ullarinnar. Flestir eiga einhverja handgerða flík sem einhver sem þykir vænt um þau hefur gert. Börnin hafa flest gaman af að segja frá sinni flík. Áhugavert að ræða um forfeður og mæður sem gerðu flestan fatnað sinn frá grunni úr ull. Hvernig allir, börnin líka unnu að fatagerð í baðstofunni.
- Sýna og skoða óspunna og spunna ull.
- Orð: sauðfé, réttir, rýja, spinna, þel, tog, vefa og prjóna.
|
|
Fötin okkar
Það skapar oft líflegar umræður að byðja nemendur um að skoða miðann inn í flík sem þeir eru í.
- Hvaðan koma fötin okkar? Hvernig komu þau hingað?
- Hverjir búa þau til og hvernig ætli kjör þeirra og aðstæður séu?
- Hvernig er framleiðslan? Vinnuaðstaða? Meðhöndlun? Litun? Eiturefni og mengun? Vatnsnotkun?
- Hvað kosta fötin? Hvað þyrftu þau að kosta svo fólkið sem vinnur við framleiðsluna gæti lifað betra lífi?
- Skynditíska: Hvað er það? Áhrifavaldar á samfélagsmiðlum.
- Fatasóun: Hversu mikið eigum við af fatnaði? Þurfum við svona mikið? Notum við allt sem við eigum/kaupum? Hvað verður um fötin sem við hendum?
- Sjálfbær tíska: hvernig er hún? Lífræn ræktun náttúrulegra efna. Endurvinnsla efna. Nýungar í framleiðslu. Sanngirnisvottanir.
|