Textílmennt og sjálfbærni

HÆFNIVIÐMIÐ FYRIR VERKEFNIÐ ÞRÆÐIR ÚR NÁTTÚRUNNI

HÆFNIVIÐMIÐ ÚR AÐALNÁMSKRÁ

Sameiginleg hæfniviðmið fyrir list-og verkgreinar:​​​

1. – 4. bekkur:
• unnið eftir einföldu ferli frá hugmynd til afurðar,
• hagnýtt þá leikni sem hann hefur öðlast í einföldum verkefnum,
• útskýrt á einfaldan hátt áhrif vinnu sinnar á umhverfið,  
• tjáð sig á einfaldan hátt um viðfangsefni sitt,
• gengið frá eftir vinnu sína,
​• unnið einföld verkefni í hópi.
5. – 7. bekkur:
• útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd til afurðar,
• hagnýtt leikni og þekkingu sem hann hefur öðlast til að takast á við fjölbreytt viðfangsefni,
• haft sjálfbærni að leiðarljósi í vinnu sinni,
• beitt helstu tækni sem námsgreinin býr yfir,  
• sýnt ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði,
​• tekið tillit til annarra í hópvinnu og sýnt frumkvæði,
8. – 10. bekkur:
• unnið sjálfstætt eftir vinnuferli frá hugmynd til lokaafurðar og greint frá mismunandi nálgun við vinnuna,
• hagnýtt þá sérhæfðu leikni og þekkingu sem hann hefur öðlast á skapandi hátt og sýnt frumkvæði,
• skipulagt vinnu sína með sjálfbærni í huga,
• beitt þeirri tækni sem námsgreinin býr yfir á sjálfstæðan hátt,  
• sýnt frumkvæði í góðri umgengni og frágangi á vinnusvæði,
​• tekið þátt í samvinnu með sameiginlegt markmið hópsins að leiðarljósi.

Hæfniviðmið fyrir textílmennt:

1. – 4. bekkur:
• notað einfaldar aðferðir greinarinnar og beitt viðeigandi áhöldum,
​• unnið eftir einföldum leiðbeiningum.
• tjáð hugmyndir sínar með einfaldri skissu,
• skreytt textílvinnu á  einfaldan hátt,
• g
ert grein fyrir mismunandi tegundum handverks og notað nokkur hugtök sem tengjast greininni.
5. – 7. bekkur:
•beitt grunnaðferðum og áhöldum greinarinnar,
​• þróað eigin hugmyndir í textílverk og unnið eftir ferli,
• notað fjölbreyttar aðferðir við skreytingar textíla.
​
• útskýrt hagnýtt og fagurfræðilegt gildi handverks og fjallað um fagurfræði í eigin verkum.
8. – 10. bekkur:​

  • beitt skapandi og gagnrýnni hugsun í hönnun og textílvinnu,
  • skreytt textílafurð á skapandi og persónulegan hátt.
  • • lagt mat á eigin vinnubrögð, sagt frá góðu handbragði, formi og hönnun og notað til þess viðeigandi hugtök

Önnur hæfniviðmið: ​

Nemandi :

  • umgengst náttúruna og efniviðinn af virðingu og nýtni,
  • getur unnið samþætt að verkefni í textílmennt og náttúrufræði,
  • leggur sig fram við hugmyndavinnu og sköpunarferli verkefnisins,
  • reynir að finna lausnir við útfærslu og framkvæmd, 
  • sýnir frumkvæði í vinnu sinni, 
  • nýtt fyrri reynslu og verkkunnáttu við verkið, reynir að finna lausnir og gera sjálfur.
  • upplifir gildi útiveru og rannsókn á náttúrunni.